Dags: 12.02.2004 11:41
Í gærkvöldi voru sýnd á RUV skemmtileg myndskeið úr leik SR og Bjarnarins á þriðjudagskvöldið. M.a. fengum við að sjá stórglæsilegt mark hjá Ágústi Ásgrímssyni frá bláu línunni, bylmingsskot sem Birgir markmaður Bjarnarins átti ekki möguleika á að verja. Enn betur sást í hægri endursýningu hversu stórkostlegt þetta mark var hjá Gústa. Það vakti einnig athygli hversu góð lýsing var á myndunum úr Egilshöll í samanburði við myndatöku í Laugardalnum. Kannski er þetta eitthvað sem þarf að laga í Laugardalnum. Við þökkum RUV fyrir góða umfjöllun.