Dags: 06.02.2004 00:48
Í kvöld áttust við SR og Björninn í Íslandsmóti karla en leikurinn fór fram í Egilshöll. SR-ingar hafa í undnförnum leikjum leikið undir getu að margra mati og því tími til kominn að sýna hvað í þeim býr. Þeir sýndu það svo sannarlega í þessum leik að liðið er til alls líklegt, leiki þeir eins vel og í kvöld. Strax í fyrstu skiptingu gaf Elvar Jónsteinsson tóninn með mikilli baráttugleði og krafti. Aðrir leikmenn fylgdu í kjölfarið og beinlínis geisluðu af sjálfstrausti. Fyrsta lotan var þó ekki mikið fyrir augað, pirringur í allt of mörgum leikmönnum og fullmikil harka. Sumir þóttst jafnvel greina gamla drauga frá þeim tíma er íshokkíið sleit barnskónum hér á landi, ekkert alltof miklir hæfileikar, en þeim mun meira af gladíatora-hugarfari sem Rómverjar hrifust af í Kolosseum fyrir 2500 árum síðan, en á ekki heima í Egilshöll, annó 2004! Staðan 3-1 SR í vil eftir fyrstu lotu. Í annarri lotu fór að bera meira á íshokkí en hægt og rólega tóku SR-ingar leikinn í sínar hendur, án þess þó að hrista af sér baráttuglaða Bjarnarmenn. Lotan var allvel leikinn og leikmenn komnir niður á jörðina. Staðan 7-5 fyrir SR eftir aðra lotu. Í þriðju lotu brustu allar stíflur og SR-ingar, með snilldarleik, beinlínis kaffærðu Bjarnarmenn. Í þessari lotu kom glögglega fram að SR-ingar eru með gott lið sem verður sífellt betra og reynslumeira. Pökkurinn gekk manna á milli og oft brá fyrir stórskemmtilegum sóknum sem enduðu með markskoti. Hvað eftir annað opnuðu þeir vörn Bjarnarins og beinlínis röðuðu inn mörkunum. Leikurinn endaði síðan 12-5 fyrir SR. SR lék sem eitt lið, sterk liðsheild sem á að geta skilað SR Íslandsmeistaratitli. Auk þess er liðið með innanborðs leikmenn einsog Jason Selkirk, sem kemur með dýrmæta reynslu frá Kanada og skorar á mikilvægum augnablikum, og svo besta íslenska íshokkíspilarann, Ingvar Þór Jónsson. Ekki skemmir það heldur að eiga markmann einsog Gunnlaug Björnsson sem oft á tíðum varði stórkostlega í þessum leik - öryggið uppmálað. Síðan er SR ekki á flæðiskeri statt með unga leikmenn en þeir Kári Valson, Gauti Þormóðsson og Úlfar Andrésson skiluðu sínu hlutverki með glæsibrag. Annars er erfitt að nefna einhvern leikmann sérstaklega þar sem þetta var sigur liðsheildar fyrst og fremst. Björninn byggir mikið á ungum leikmönnum en þá vantar tilfinnanlega meiri reynslu og þegar Sergei þjálfari þeirra er utanvallar er liðið mjög brothætt. Þeir eru þó sífellt að bæta sig. UM tölfræði leiksins og nánari lýsingu má lesa hér.