Dags: 02.02.2004 17:26
Í gærkvöldi áttust við í Egilshöll SR og Björninn í 3. flokki. Leikurinn var mjög skemmtilegur og fjörugur, en að sama skapi kaflaskiptur. Í fyrri hluta leiksins léku SR-ingar mjög skynsamlega og komust þá í 6-2. Í byrjun seinni hálfleiks kom hræðilegur kafli hjá SR, en þá nýttu Bjarnarmenn sér einbeitingarleysi SR-inga og skoruðu 3 mörk á tveimur mínútum með mikilli ákveðni. Staðan þá 6-5 fyrir SR og u.þ.b. 25 mínútur eftir. SR bætti þó öðru marki við, staðan 7-5 en Birninum tókst þó að jafna fyrir leikslok, 7-7. Á þessum kafla vermdu SR-ingar refsibekkinn oft og iðulega, sem kom Bjarnarmönnum til góða. Ungir dómarar leiksins stóðu sig ágætlega, en hefðu mátt vera meira vakandi gagnvart brotum sem gerðust fjarri pekkinum. Bæði liðin sýndu þó góða baráttu, og oftast heilbrigða, og skemmtu áhorfendum með góðum leik. Hjá SR skoruðu: Þorsteinn Björnsson (4), Úlfar Andrésson (1), Jón Þröstur Haukson (1) og Sindri Sigurjónsson (1). Þeir Þorsteinn og Úlfar voru nýlentir fyrir þennan leik eftir að hafa dvalið í Kaupmannahöfn undanfarna viku við æfingar í boði Gentofte og Rödovre liðsins þar.