Dags: 24.01.2004 17:54
Vinsældir Skautaskólans, undir stjórn Helga Páls Þórissonar, halda áfram en í dag byrjaði 100. þátttakandinn á þessum vetri í Skautaskólanum. Það var Árdís Gígja Ólafsdóttir, á fjórða ári (!), sem markaði þessi tímamót. Svo skemmtilega vill til að einmitt í dag birtist í Morgunblaðinu heilsíðugrein um Skautaskólann og barnastarf íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur. Þessi umfjöllun er enn einn vitnisburðurinn um uppgang íshokkís á Íslandi og það mikla starf sem SR, SA og Björninn hafa unnið undanfarin ár að eflingu íþróttarinnar. Sú leið sem valin var að beina öllum nýliðum, sem vildu æfa íshokkí hjá SR, fyrst í Skautaskólann, virðist hafa heppnast. Nú þegar hafa tæplega 40 nýliðar klárað Skautaskólann með sóma og byrjað æfingar með félaginu, og margir aðrir bíða í ofvæni eftir að geta tekið stökkið yfir í íshokkí. Enda þótt þessi mikla vakning og þátttaka sé kærkomin fyrir SR, er ljóst að fyrir næsta tímabil verður að auka verulega fjölda æfingatíma hjá félaginu til að geta haldið utan um þennan stóra hóp, og til að allir sitji við sama borð.