Fréttir

Total items: 1194

Markaskorun og markvarsla í NHL

Dags: 23.01.2004 09:10


NHL deildin stendur nú sem hæst og línur teknar að skýrast. Í Austurdeildinni eru það það Toronto Maple Leafs og Ottawa Senators sem tróna á toppinum, en í Vesturdeildinni eru það að venju Detroit Redwings og Colorado Avalance sem bítast innbyrðis um efsta sætið. Það sem vekur kannski eftirtekt er hversu stór hlutur Evrópubúa er á listanum yfir stigahæstu menn, en í 5 efstu sætunum er einungis einn N-Ameríkubúi (sjá hér). Markus Naslund frá Svíþjóð er þar efstur, einsog svo oft undanfarin ár, og rússneska ungstirnið, Ilya Kowalchuk, í fjórða sæti. Á listanum yfir bestu markmennina, þ.e. hlutfall varinna skota, eru tveir Finnar í efstu þremur sætunum, en Miikka Kiprusoff er þar í fyrsta sæti með 94.1% varin skot! (sjá hér).  

Markus Naslund