Dags: 21.01.2004 18:44
Í gær kveldi áttust við SR og Björninn í Íslandsmóti í 3. flokki og fór leikurinn fram í Egilshöll. Skemmst er frá því að segja að okkar menn töpuðu stórt, 2 - 7. Björninn lék oft á tíðum mjög vel í þessum leik á meðan okkar strákar virtust þreyttir og á tíðum með litla einbeitingu. Varnarsamvinna var oft tæp og sendingar leikmanna ónákvæmar. Leikir þessara liða hafa þó yfirleitt verið nokkuð spennandi og víst er að SR-ingar mæta tvíefldir í næsta leik, enda geta þeir leikið miklu betur.