Fréttir

Total items: 1194

Íshokkí á Hornafirði!

Dags: 19.01.2004 14:41


hokki.jpg

Þessi stórmerkilega frétt birtist á horn.is: "Í gær var fyrsti íshokkíleikurinn spilaður á Hornafirði svo vitað sé. Það eru feðgarnir Ásgrímur og Ari Þorsteinsson sem flutt hafa þessa íþróttagrein inn frá Kanada en Ásgrímur æfði íshokkí áður en fjölskyldan flutti heim til Hafnar á síðasta ári. Ari segist hafa átt tvö mörk og tvo markmannsbúninga en töluvert af búnaði þarf í þessari grein, hraðin er mikill og nauðsynlegt að hafa góðar hlífar.
Fyrirhugað er að stofna Skautafélag Hornafjarðar og segir Ari að félagið muni starfa í tveimur deildum, íshokkídeild og listdansdeild." Skautafélag Reykjavíkur óskar þeim Hornfirðingum góðs gengis og vonar að þeir geti ýtt úr vör félagi eins fljótt og hægt er.