Dags: 18.01.2004 14:09
Í gærkveldi áttust við í Laugardalnum SR og SA í Íslandsmóti karla. Fyrirfram var búist við skemmtilegum leik og því mikið lagt í umgjörð leiksins. Lið SR-inga var kynnt með ljósum og reyk, sem tókst mjög vel, undir dynjandi tónlist. Áhorfendur áttu því von á að leikmenn, þá sérstaklega SR-ingar, tækju nú á og sýndu sínar bestu hliðar. Það var öðru nær! SA spilaði einungis á tveimur línum, tóku sér góðan tíma, og reyndu að halda niðri hraðanum. Inn á milli settu þeir í fullan gír þegar á þurfti að halda. SR-ingar sýndu sjaldan einhvern kraft og leyfðu norðanmönnum að ráða hraðanum í leiknum. Rúnar skoraði fljótlega fyrir SA í fyrstu lotu eftir slælega varnarvinnu SR og skömmu seinna voru þeir aftur að verki eftir sofandahátt í vörn SR. SA komst svo í 0-3 með marki Tibor Tatar eftir hraðaupphlaup, einum manni færri. Ekki gæfuleg byrjun! Nú tók hins vegar við ágætis kafli hjá SR. Hallur náði að minnka muninn með ágætismarki og síðan skoraði Árni tilþrifamikið mark, hálfgert "hafnaboltamark" og staðn því orðin 2-3 norðanmönnum í vil. Síðan nýttu SR-ingar kjörið tækifæri á að jafna leikinn er norðanmenn lentu tveimur leikmönnum undir, en markið skoraði Gauti. Þá var komið að næstu yfirsjóninni í vörn SR sem Tibor Tatar þakkaði fyrir með marki fyrir SA. Rúnar bætti svo enn einu marki fyrir norðanmenn og var það af ódýru gerðinni; skoppandi pökkur framhjá Gunnlaugi markmanni SR. Staðan því 3-5 fyrir norðanmenn og tekið að syrta verulega í álinn fyrir SR. Jason náði þó að minnka muninn fyrir SR með glæsilegu, föstu skoti upp í fjærvinkilinn. Nú héldu áhorfendur að SR-ingar myndu nú ganga á lagið, keyra upp hraðann og freista þess að lýja norðanmennina ennfrekar. Sú varð ekki raunin. SR fékk dæmt á sig vítaskot (varnarmaður SR frysti pökkinn inn í vítateignum að mati dómara) sem Tibor Tatar átti ekki erfitt með að nýta. Staðan því 4-6 og skammt til loka leiksins.
Þessi leikur olli miklum vonbrigðum fyrir SR-inga og ótrúlegt að leikmenn skyldu ekki bíta í skjaldarrendur, keyra upp hraðann og þreyta norðanmennina með sínar tvær línur. Herfileg varnarmistök, og lítil vinnsla var uppskriftin að þessu tapi. Norðanmenn voru vel að þessum sigri komnir, léku ávallt skynsamlega og innan þeirra raða eru þrír geysilega sterkir útlendingar. Þar fer fremstur í flokki Tibor Tatar sem er leikmaður sem getur gert gæfumuninn ef á þarf að halda, líkt og Sergei Zak hjá Birninum. Hjá SR var Skagamaðurin Jason Selkirk mjög góður, er stöðugt að bæta formið, og svo Richard Tahtinen, sem er að stíga upp úr erfiðum meiðslum. Nánari tölfræði um leikinn má nálgast hér.