Dags: 17.01.2004 15:40
Í kvöld mæta SR-ingar Akureyringum í SA í Íslandsmóti karla en þessi lið mættust um síðustu helgi þar sem norðanmenn báru sigur úr býtum, 7-4, eftir að SR hafði komist í 0-3. Leikurinn hefst kl. 18:30 í Laugardalnum en áður en hann hefst verða leikmenn kynntir með nýjum hætti. Er vonast til að þetta muni skapa enn betri stemningu á pöllunum og að áhugafólk um íshokkí fjölmenni nú í Laugardaginn.
Áfram SR!!