Dags: 15.01.2004 12:48
Í kvöld fer fram í Egilshöllinni fyrsti leikurinn sem spilaður er þar í Íslandsmóti karla í íshokkí, en þá eigast við Björninn og SR. Með tilkomu Egilshallar náðist fram langþráður draumur um aðra skautahöll í Reykjavík, og með flutningi Bjarnarins úr Laugardalnum og upp í Egilshöll erum við komin með tvo heimavelli í Reykjavík, SR í Laugardalnum og Björninn í Egilshöll. SR óskar Birninum til hamingju með þessi tímamót en leikurinn hefst kl. 20:00.