Dags: 12.01.2004 17:40

SR mætti SA norður á Akureyri á laugardaginn í Íslandsmóti karla. Mikil eftirvænting var fyrir þennan leik þar sem gestgjafarnir höfðu ekki spilað leik síðan í nóvember. Eftir magnaða ferð frá Reykjavík hófu SR-ingar leikinn af fullum krafti og opnaði Kristján Óskarsson markareikninginn fyrir SR strax þegar 2 mínútur voru liðnar. Helgi Páll Þórisson bætti skömmu síðar öðru marki fyrir SR með léttu úlnliðsskoti frá bláu línunni. Gauti Þormóðsson skoraði síðan 3. mark SR þegar 6 mínútur voru eftir af leikhlutanum. Staðan því 3 - 0 fyrir SR.
Þjálfari þeirra norðanmanna hefur líklega lesið yfir hausamótunum á sínum mönnum og rekið þá inn á ísinn einsog óður bóndi í réttum, því allt annað var að sjá til Akureyringanna í upphafi annarrar lotu. Það sem hafði þó líklega verulega þýðingu fyrir framvindu leiksins var undarlegt og í raun óútskýranlegt atvik er átti sér stað þegar um 4 mínútur voru liðnar af annarri lotu. Á sama tíma og Jan Kobezta (SA) lenti í samstuði við Ágúst Ásgrímsson (SR) náði Jón Ingi Hallgrímsson víst að skora mark fyrir SA. Það í sjálfum sér þykir ekki undarlegt nema hvað að hvorki dómarinn, línumenn né aðrir leikmenn tóku eftir því... jú nema kannski markadómarinn sem ákvað uppá sitt eindæmi að hlaupa úr sæti sínu og lýsa því yfir að það hafi verið skorað mark. Eftir mikil fundarhöld og rökræður var dæmt mark, mörgum til mikillar undrunar.
Var það til þess að norðanmenn fengu lítið ljós í tilveruna sem eflaust hjálpaði þeim að spila sig inní leikinn sem SR-ingar voru búnir að halda þeim út úr. Clark McCormik náði svo að minnka muninn enn frekar fyrir SA eftir varnarmistök hjá SR.
Í þriðju lotu voru SA-menn komnir á fullu inní leikinn og með vonina að vopni náðu þeir að jafna leikinn strax þegar 15 sekúndur voru liðnar af leikhlutanum. Var þá sem SR-ingar hreinlega misstu allan þann eldmóð sem í þeim var, því miður. Jason Selkirk kom þó SR-ingum aftur yfir með ágætis hraðaupphlaups-marki en stuttu síðar náði Jan Kobezta að jafna leikinn aftur með ágætis skoti. Clark McCormik, Sigurður Sveinn og Rúnar Freyr náðu síðan allir að skora sitt markið hvort fyrir SA áður en leiktíminn var úti og uppskáru SA menn því 7-4 sigur á SR.
» Stig leikmanna
» Leikskýrslan
SR-ingar fara nú að undirbúa sig undir komandi átök sem eru við
Björninn sem verður núna á fimmtudaginn næsta.