Dags: 03.01.2004 20:22
Síðasta leik U-20 landsliðsins í íshokkí var að ljúka rétt í þessu en leikurinn endaði 10 - 3 fyrir Belgíu. Eitthvað mikið hefur gengið á í leiknum því af leikskýrslum að dæma hefur næstum því met verið slegið í refsimínútum eða 122 á móti 121 mínútu. Í fyrsti leikhluta voru þó einungis 3 brottvísanir á hvort lið en í öðrum leikhluta var meiri harka í okkar mönnum og fengu þeir rúmlega 30 mínútur í boxinu. Í þriðja og síðasta leikhluta virðist sem pirringur hafi hlaupið í mannskapinn því liðin fengu 80 og 108 mínútur í refsingu, og þar af megnið fyrir stympingar. Alls voru það 2 Íslendingar sem fengu Leikdóm (Game Miscunduct) og 4 leikmenn frá Belgíu. Þeir sem skoruðu mörk Íslendinga voru Gauti Þormóðsson með 2 mörk, og Kári Valsson með eitt mark.
Það er nokkuð ljóst að strákarnir hafa átt við ofurefli að etja í þessu mót þar sem þeir töpuðu öllum leikjum mótsins með miklum mun. U-20 landslið Íslands mun því spila í 3. deild að ári. Þessi niðurstaða þarf varla að koma á óvart þar sem Ísland þurfti að keppa við mjög sterkar þjóðir að þessu sinni, og ekki hjálpaði það til að U-20 lið okkar er alltof ungt að árum, flestir fæddir ´86 og ´87, og t.d. aðeins einn ´84. En þetta hefur verið góður skóli fyrir þessa stráka og nú er bara að æfa meira.