Fréttir

Total items: 1194

Æfingar að hefjast að nýju

Dags: 03.01.2004 20:24


Eftir langt og gott jólafrí hefjast æfingar að fullu hjá félaginu skv. stundatöflu mánudaginn 5. janúar. Ekki er að efa að leikmenn bíði í ofvæni eftir að geta aftur reimað á sig skautana og hitt félaga sína niður í Skautahöll. Framundan eru æfingar og Íslandsmót yngri flokka, og Mfl á sinn fyrsta heimaleik um miðjan janúar. Hinn vinsæli Skautaskóli, undir stjórn Helga Páls, verður á sínum stað en búast má við að fjöldi nýrra iðkenda taki þátt í honum strax eftir jólafríið, brynjaðir nýjum skautum. Í mars fer svo fram í Skautahöllinni keppni í einum riðli í heimsmeistaramótinu, þar sem Íslendingar mæta m.a. Tyrkjum, Írum og Armenum (sjá hér). Svo má ekki gleyma að félagið hyggst brydda uppá ýmsum nýjungum í félagsstarfi á vormánuðum.