Dags: 02.01.2004 18:35
Það voru orð að sönnu að strákarnir í U-20 landsliðinu myndu eiga við ramman reip að draga á þessu móti. Leikirnir hafa verið erfiðir fyrir okkar stráka og ekki var leikurinn við gestgjafana, Pólverja, engin undantekning. Pólverjar unnu með 26 mörkum gegn einu marki Íslendinga og verður það að teljast vel sloppið þar sem Pólverjar eru settir í 19. sæti heimslistans, eða 20 sætum ofar Íslandi.
Eina mark Íslands skoraði Bjarnarmaðurinn Brynjar (Binni) Þórðarsson.
Leikurinn við Spánn var ögn skrárri fyrir okkar menn þar sem Íslendingar náðu að skora ein 6 mörk á móti þeim spænsku. Þar var Gauti okkar Þormóðsson atkvæðamestur með alls 3 mörk.
Það er hins vegar einn titill sem hangir í okkur Íslendingum en það er sá vafasami titill "Most Penalized Player" er okkar maður, Karl Ericsson, gerir atlögu að (nú með 27.mínútur í boxinu). Samtals á Ísland 7 einstaklinga á þessum vafasama lista. Af þessu má kannski ráða að okkar drengir eru ekki að tapa leikjunum baráttulaust.
Þeir sem hafa áhuga á því að skoða leikskýrslur þessara leikja geta sótt í þær hér fyrir neðan:
Ísland - Póland
Spánn - Ísland
Vefur mótsins