Fréttir

Total items: 1194

Nýtt útlit á heimasíðu

Dags: 29.12.2003 14:06


greind250-200.jpg

Eins og glöggir lesendur okkar taka eftir hefur heimasíða íshokkídeildarinnar fengið nýtt útlit. Allan heiðurinn að þessari nýju hönnun eiga þeir Georg Hilmarsson og Helgi Páll Þórisson, SR-ingur, hjá Greind ehf en það er von okkar að þessar breytingar falli lesendum okkar vel í geð. Hin nýja uppbygging og hönnun gerir okkur m.a. kleyft að uppfæra síðuna á einfaldari hátt og auka til muna myndefni. Jafnframt verða allar tilkynningar skilvirkari. Aðrar nýjungar verða kynntar á næstu vikum.